News
Press Release to the Icelandic Media
International Porvoo Group Seminar, Reykjavík, 26.–27. maí 2005
Sjöundi fundur Porvoo samstarfsins var settur í morgun af Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Porvoo samstarfið er fjölþjóðlegt samstarfs- og samskiptanet sérfræðinga þar sem unnið að því að auka notkun og samhæfa rafræn skilríki og rafræn auðkenni byggð á dreifilyklaskipulagi (PKI, Public Key Infrastructure). Markmið samstarfsins er auðvelda örugg rafræn samskipti í Evrópu og á alþjóðavettvangi.
Ráðstefnuna sækja tæplega 80 fulltrúar ríkja sem taka þátt í Porvoo samstarfinu, fulltrúar einkaaðila frá Evrópu og Japan, fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og stjórnvalda í Bandaríkjunum.
Viðfangsefni fundarins er m.a. stöðuyfirlit rafrænna skilríkja á Íslandi og í öðrum þátttökuríkjum. Umfjöllun um alþjóðleg samhæfð rafræn skilríki, stöðlun og lagaleg álitamál vegna rafrænna skilríkja og umfjöllun um vegabréf með lífsýnum.
Aðalskipuleggjendur ráðstefnunnar eru fjármálaráðuneytið og finnska þjóðskráin, auk þeirra unnu að skipulagningu ráðstefnunnar af Íslands hálfu, fulltrúar forsætisráðuneytis, dóms- og kirkjumálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, Ríkisskattstjóra, Tollstjóra og Hagstofu Íslands.
Nánari upplýsingar veitir:
Jóhann Gunnarsson, fjármálaráðuneyti,
Sími 545-9200, gsm: 695 3122 - e-mail johann.gunnarsson@fjr.stjr.is
Nánari upplýsingar á vefnum:

